Hver er staða íslenska fjárhundsins í dag?

Hero Image

14.02.2025Evelyn Ýr

Fyrir nokkrum dögum birti Hundaræktarfélag Íslands (HRFÍ) tölfræði yfir hvolpaskráningar síðasta árs. Íslenski fjárhundurinn var í fimmta sæti með 100 skráða hvolpa úr 21 goti. Til samanburðar var Labrador Retriever í fyrsta sæti með 374 hvolpa úr 55 gotum.

Deild Íslenska fjárhundsins barst á síðasta ári bréf frá lektor við Háskólann á Hvanneyri, þar sem fram kom að Erfðanefnd landbúnaðarins væri að gera landsáætlun um verndun og varðveislu erfðaauðlinda í íslenskri náttúru og landbúnaði til næstu fimm ára. Þar er sérstakur kafli um íslenska fjárhundinn, og óskað var eftir upplýsingum um fjölda lifandi íslenskra fjárhunda á Íslandi og erlendis. Eins og fundargerð stjórnar DÍF gefur til kynna, er Ræktunarstjórn DÍF nú að vinna úr sínum skýrslum til að fá raunverulega stærð stofnsins á Íslandi í dag.

Það verður mjög áhugavert að sjá hver stærð stofnsins er í raun, þar sem gagnagrunnurinn sýnir einungis fjölda skráðra hunda hjá HRFÍ frá upphafi. Þeir eru 4503 talsins þegar síðast var gáð, en ekki er hægt að sjá nákvæman fjölda lifandi hunda í dag.

Ég fann grein frá 1988 þar sem fram kom að aðeins 100–200 íslenskir fjárhundar væru til, og að miklar áhyggjur hefðu verið af smæð stofnsins og þeirri áskorun að viðhalda nægilegum erfðafræðilegum fjölbreytileika. Þar kom einnig fram að skilningur Íslendinga á því hversu mikil gersemi íslenski fjárhundurinn væri, hefði verið frekar lítill á þeim tíma. Hins vegar var mikil eftirspurn erlendis frá eftir hreinræktuðum hvolpum frá Íslandi.

Nú spyr ég – kannski einu sinni enn – hefur það breyst? Er skilningur Íslendinga á þjóðarhundinum okkar meiri nú en fyrir 37 árum? Ég get ekki borið það saman þar sem ég flutti til landsins árið 1995, en mér finnst Íslendingar almennt vera meðvitaðir um sinn þjóðarhund. Það eru einnig fleiri hundar nú en árið 1988, en ég myndi vilja sjá enn fleiri íslenska fjárhunda – ekki síst sem bæjarprýði og vinnufélaga bænda.

Í greininni frá 1988 kemur fram að verð á hvolpi á þeim tíma var 30.000 ISK. Í dag er verðið í kringum 350.000 ISK, sem er, eftir því sem ég best veit, lægsta verð fyrir hreinræktaðan hvolp með ættbók frá HRFÍ. Því ætti verðlag þjóðarhundsins okkar ekki að vera hindrun fyrir þá sem vilja eignast íslenskan fjárhund og þar með styðja við stöðu þessarar þjóðargersemi.


SAMFÉLAGSMIÐLAR

HAFA SAMBAND

Lýtingsstaðir, 561 Varmahlíð.
Phone: +354 893 3817
[email protected]

HAFA SAMBAND

Sími: +354 893 3817
[email protected]

HEIMILISFANG

Lýtingsstaðir, 561 Varmahlíð.
561 Varmahlíð
Ísland

SoknaraetlunStjórnarráðRoyal Canin