Sögur

Evelyn Ýr

Fixe

Fixe

Hershöfðinginn og hundurinn hans Fixe (1759–1772)

Von Siegroth var yfirmaður Kalmar-hersveitarinnar í Pommernstríðinu (1757–1762). Eftir uppgjöfina við Demmin árið 1759 var hann stríðsfangi í Stettin þegar hann keypti hundinn.

Á bakhlið olíumálverksins á striga, sem Johan Stålbom (1712–1777) málaði á 18. öld, lét von Siegroth rita eftirfarandi:

„Fixe. Tryggur hundur af íslensku kyni, fæddur í Danzig vorið 1759, sem gekk í þjónustu húsbónda síns í Stettin um haustið sama ár. Honum þjónaði hann af trúmennsku frá hvolpsaldri til æviloka, sem bar að á Kapsta í janúar 1772. Verðleikar hans og ævintýri voru mörg og hafa verið skráð, og mynd hans er varðveitt hér á Marianalund.

G. A. von SiegRoth“

0JqMqKCV

Á blaðmiða sem festur er við málverkið er eftirfarandi orðsending, rituð með annarri rithönd:

„Þar sem húsbóndi hans hefur tekið sér fasta búsetu í húsinu biður hinn trúi þjónn hans, Fixe, þess auðmjúklega að honum verði af góðvild úthlutaður staður í sama húsi sem dyravörður, hversu lítilmótleg sem sú staða kann að vera, ef leyfi fæst til.“

Málverkið, sem var líklega gjöf frá von Siegroth til liðsforingjasveit Konunglegu Södermanlandshersveitarinnar, hékk í hringbyggingunni við Malma Hed, fyrir ofan dyrnar að bókasafninu.

Þegar málverkum og mannamyndum var endurraðað árið 1898 lagði yngsti undirliðsforinginn til að málverkið af hundinum yrði flutt í annað herbergi en það sem hýsti konungsmyndirnar.

Fyrir þessa tillögu fékk hann harðlega áminningu.

Yfirmaður hersveitarinnar taldi að hundurinn hefði verið húsbónda sínum trúr og ætti því að gæta dyranna að matsal liðsforingjanna. Þeirri varðstöðu hefur hann sinnt allt til þessa dags, fyrst í Malmköping og nú í Strängnäs.

p10-move-2021-photo-0

Málverk af Fixe vinstra megin og af von Siegroth hægra megin á Hotel Bishops Arms í Strängnäs.

Fixe fæddist árið 1759 og dó árið 1772, tæplega 13 ára gamall. Málverkið af honum var málað árið 1763, þegar hann var um fjögurra ára gamall.

Eftir því sem við best vitum er þetta málverk ein elsta varðveitta myndin af íslenskum fjárhundi og Fixe elsti nafngreindi íslenski fjárhundurinn sem getið er um í sögulegum heimildum.

Meira um Fixe-málið hér.


Hafa samband

Lýtingsstaðir, 561 Varmahlíð.
+354 893 3817
fjarhundur@fjarhundur.is

Fylgdu okkur

SóknaráætlunStjórnarráðRoyal Canin