24.02.2025Evelyn Ýr
Villtur á Breiðdalsheiði
Árni Bjarnason frá Borg í Skriðdal bjó á Hátúnum í sömu sveit í fjórtán ár. Það var veturinn 1952 að Árni þurfti að fara suður í Breiðdal að sækja útvarpstæki sem Kristín mágkona hans átti þar. Þetta var nokkuð stórt tæki með sambyggðri rafhlöðu, þó nokkur baggi. Hann óraði ekki fyrir að þessi ferð yrði honum jafn erfið og minnisstæð sem raun bar vitni og síðar greinir.
Árni lagði af stað frá Hátúnum eftir hádegi og fór stystu leið, því hann var henni kunnugur. Liggur hún inn Hátúnadal og suður yfir Múlan, sem er á að giska í 600 metra hæð. Síðan lá leið hans yfir heiðar sem er í álíka hæð og Múlinn. Snjór var mikill og gott gangfæri.
Segir nú ekki af ferð hans fyrr en hann kemur að Þorgrímsstöðum í Breiðdal um kvöldið. Fékk hann þar góðar viðtökur, enda heimilið rómað fyrir gestrisni. Þegar Árni fór að grennslast eftir áðurnefndu viðtæki kom í ljós að það var út í Höskuldsstaðaseli, en þangað er alllöng bæjarleið.
Eftir að Árni hafði þegið góðan beina og hvílt sig á Þorgrímsstöðum fór hann um kvöldið út að Höskuldsstaðaseli, sótti tækið og fór aftur inn að Þorgrímsstöðum til gistingar.
Morguninn eftir var dimmt í lofti og snjómugga. Bjóst Árni samt til ferðar. Benedikt Hjartarson á Þorgrímsstöðum, gætinn maður og veðurglöggur, latti hann mjög, þótti honum veðurútlitið ótryggt. Árni lét þó ekki letja sig, hefur vafalaust hugsað og jafnvel sagt: „Heim vil eg.“ Hann lagði nú af stað til Breiðdalsheiðar með viðtækið á bakinu.
Segir ekki af ferð hans fyrr en hann kemur upp í svokallaða Þröng sem er lægri brún á heiðinni að sunnanverðu. En þá er komin moksnjókoma, logn og koldimmt. Á svonefndri Tjarnarflöt er því sem nær vinkilbeyja á veginnum. Er því mjög varasamt þarna í dimmviðri. Ætlar Árni nú að taka stefnu á Tjarnarás sem er á háheiði. Hann hefur engan kennileiti til að styðjast við og sér ekkert frá sér. Er hann hefur gengið það lengi að hann hefur átt að vera kominn að Tjarnarás, verður hann þess var að hann er búinn að tapa réttum áttum og er orðinn villtur. Alltaf er sama logndrífan og komin hnéófærð. Ætlar hann þá að taka slóðina sína til baka, en er hann hefur gengið smáspöl er slóðin horfin. Heldur hann nú áfram hugsaði án þess að vita hvert stefnir og alltaf helst sama veðrið. Stansar hann loks og fer að hugsa um í hvert óefni sé komið.
Þegar Árni lagði af stað heiman frá sér daginn áður hafði hann lokað hundinn sinn Bobba inni, en hann hafði sloppið út og náði honum fljót. Bobbi hafði alltaf labbað á eftir honum til þessa. Nú þegar Árni er stansaður, villtur og farinn að þreytast, verður honum það fyrir að klappa Bobba og tala við hann eins og mann, segir honum meðal annars að nú verður hann að fara á undan sér heim en það er engu líkara en Bobbi skilji hvað hann á að gera. Árni segir við hann og klappar honum um leið: „Nú förum við af stað heim og þú ferð á undan.“
Bobbi labbar þegar af stað og fer nú alveg í vinkil við það sem Árni hafði farið áður. Fer hann nú í slóðina á eftir Bobba, en svo var dimmt að hann sá ekki alltaf til hans og var hræddur um að tapa af honum. Kallaði hann stundum til hundsins, en hann kom aldrei til baka, bara gelti við og við. Svona halda þeir lengi áfram þangað til verður fyrir þeim árgil. Fer Bobbi ofan í gilið, en Árni heldur að betra muni að ganga niður með gilinu hægra megin. Kallar hann nú á Bobba.
Hann er tregur til að koma upp úr gilinu, en gerir það að lokum. En nú bregður svo við, að hann vill ekki fara á undan lengur. Fer Árni nú niður með gilinu og gengur það vel, en veit ekkert hvar hann er fyrr en hann er kominn niður á sléttlendi. Var þar dálítið bjartara. Höfðu þeir hitt á Forvöðará upp í samfendndum dal og farið með henni niður í Víðigróf. Þegar Árni sér hvar hann er staddur þakkar hann forsjóninni fyrir hve vel rættist úr með þessa erfiðu ferð. Er hann nú sem allur annar maður, klappar sínum trygga hundi, Bobba, og gengur hægt af stað út dalinn. Finnur hann nú að hann er orðinn sársvangur og þreyttur, en hann hafði verið nestislaus og komið kvöld. Gengur hann nú út dalinn og heim að Vatnsskógum. Þarf ekki að orðlengja það að hann fékk þar hinar bestu móttökur og gistingu um nóttina. En ansi var honum hrollkalt um kvöldið.
Morguninn eftir var kominn norðaustan byljur og frost en ratbjart. Árni kom við í Hjarðarhlíð hjá Bergþóri bróður sínum, stansaði þar góða stund og hvíldi sig. Bergþór fylgdi honum síðan upp á Hálsamót, en það er smáslakki í Múlanum á milli Norðurdals og Suðurdals. Var nú stutt leið eftir niður fjallið og inn með því heim að Hátúnum.
Úr: Frá torfbæ til tölvualdar á 50 árum. Stefán Bjarnason í Flögu. Egilsstöðum 1990.
Myndir: gerðar með gervigreind
Sími: +354 893 3817
[email protected]